kræst
23.10.2008 | 16:52
Minnið mig á að halda aldrei aftur afmæli fyrir Birtu
Ég er gjörsamlega búin á því, vottur af taugaáfalli held ég, er algjörlega ekki að meika þessar stelpur í bekknum hennar. Mér líður eins og það hafi verið valtað yfir mig eða lent fyrir lest eða eitthvað álíka. Að 9 ára stelpur geti verið svona leiðinlegar litlar tíkur, afsakið orðbragðið, mér er bara ofboðið. Ok þær eru ekki allar svona slæmar en nógu margar til að eyðileggja fyrir öllum hinum. Þetta svosem byrjaði ágætlega, sótti þær í skólan svo var opnað pakka og borðað á eftir því. Þetta gekk allt saman vel fyrir sig og tók lengri tíma en ég átti von á þannig að ég var bara orðin nokkuð bjartsýn á daginn. Svo var farið út á íþróttavöll til að spila fótbolta, hafnarbolta og fleiri leiki, sem bæ ðe vei stóð á boðskortinu. Fyrst var einhver sem tuðaði yfir því að fara í fótbolta, ok svo þegar loksins var búið að greiða úr því átti að skipta í lið. Birta fékk að ráða og skipti nokkuð fair svo að það væri blandað góðir og lélegir saman í liði... það kostaði ekki lítil rifrildi meðal þessara litlu monstera. En mamman sagði svona spilum við og svo getum við breytt liðunum á eftir... nokkuð fair ekki satt Eftir ca. 20 sek. spilatíma var komið ósætti og rifrildi aftur og svona gekk þetta allan tíman meðan við vorum að reyna að leika, endalaust tuð yfir að nenna ekki hinu og þessu og vilja ekki vera með þessum og hinum í liði, eða standa þarna eða hinumegin. Þær fundu gjörsamlega upp á öllu til að vera á móti. Ég var að verða frekar klikkuð Reyndi smá pædagogik á þær, hey við erum að spila til að hafa það gaman saman, skiptir ekki máli hver er betri eða verri o.s.frv. Haha eins og það hafi virkað á þessi litlu... Ég var orðin það langt leidd að ég sagði við þær að ef að maður v ildi ekki vera með í því sem ætti að gera og væri með tuð og leiðindi að þá ætti maður ekki að vera að mæta í afmælisveislu... Við gáfumst náttúrulega upp á þessum leikjum á endanum og héldum heim aftur. Eftir svolitlar rökræður var samþykkt að fara í feluleik, og vá þær léku sér í feluleik þar til veislan endaði Þannig að mín niðurstaða er sú að þær geta ekki verið saman í "holdsport" (veit ekki alveg hvað það kallast á góðri ísl.) en geta svo leikið svona einstaklings leiki, verst hvað ég var sein að fatta það
Allavega sagði ég við Birtu að á næsta ári yrði annað hvort bara boðið öllum strákunum eða engin veisla, þá væri allavega hægt að spila fótbolta vandræðalaust. Birta var nú ekki alveg að samþykkja það, hélt því fram að það væri pinligt að vera eina stelpan en leist að öðru leiti ágætlega á
Jæja þá er ég búin að létta aðeins á mér, og líður mikið betur fyrir vikið, spurning hvort maður fái sér ekki bara öllara í kvöld, þar sem maður er í fríi á morgun
Athugasemdir
hehe.. þetta kallast hópíþrótt Stína mín... En gaman að það hefur verið fjör í afmælinu.. telst nú nokkuð gott ef bara 1 af 4 bekkjum er monster hehe. Gaman að sjá að bloggið aðeins lifnaði við.. láttu nú ekki líða svona langt á milli aftur... Hefur ekki einu sinni sagt frá brúðkaupsdeginum.. skamm skamm. Jæja knús á liðið frá okkur Rán, Hringi í ykkur við tækifæri svo hún geti allavega sagt hæææææ við ykkur í simann.. algjör símadama sko
Besta systa (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 08:35
haha vá hvað ég skil þig! það eru 22 stelpur í bekknum hennar Aldísar og OMG það er eins og nokkur monster séu saman komin þegar þær eru allar... munur að hafa bara verið 4 stelpur eins og í okkar bekk haha
annars til hamingju með dúlluna
sigga (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 22:55
hahahaha vá hvað ég skemmti mér vel yfir þessari færslu :D ef þú blótar svona mikið þá hlýtur þetta að hafa verið VERULEGA skrautlegt :D:D:D
Lauga (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 23:25
Hehe hópíþrótt hljómar líka miklu betur en fjöldaíþróttin sem ég ætlaði að stinga upp á
Já börn geta verið frekar leiðinleg... Skil nákvæmlega hvað þú varst að ganga í gegnum.
Hlakka til að sjá þig á laugardaginn
Hulla Dan, 3.11.2008 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.